Já ætli maður hendi ekki inn einum sjóðheitum með öllum eins og ég hef stundum kallað það beint í frulluna á ykkur kæru vinir.
Maður er nýstiginn heim eftir erfiðan vinnudag og vitir menn það sem blasir við manni er ekki af verri kantinum skal ég segja ykkur, 5 dagar í fríi hérna á draumaeyjunni í sól og blíðu , með sleikjó og íslenska fánann.
Talandi um álverið lenti ég í herfilega vandræðalegu hérna í sturtunni um daginn, það er semsagt þannig að það eru sturtuklefar í álverinu líkt og í sundlaugum, og þar sem menn svitna mikið fara flest allir í sturtu.
Og það er þarna einn vinnudaginn sem ég fer í sturtu og við erum eiginlega bara svona tveir að fara, semsagt ég og einn gamall kall, og við erum nýkomnir í klefann og ég í þann mund að fara kveikja á vatninu þá segir gamli ” Hva, ætlaru í sturtu í nærbuxunum ” og ég lít niður á þessar rauðleitu gítarnærbuxur sem ég á og ég segi alveg eins og bjáni ” heh neee ” og fer úr nærbuxunum, svo gengur svona líka vel í sturtunni ég sápa mig þarna í mínu horni og gamli kallinn í sínu. Svo er ég búinn á undan Guðlaugi í sturtunni og fer og tek handklæðið mitt úr rekkanum þríf mér svona ágætlega og síðan festi ég svona handklæðið utan um mittið á mér til að setja á mig “roll on”

Handklæði utan um mitti
Ég geng úr klefanum og fatta allt í einu “Ahh, ég gleymdi handklæðinu” en þá er ég búinn að gleyma því að ég er með það um mittið þannig ég geng að handklæðinu hjá gamla kallinum tek það þríf mér aðeins um kollinn og er á leiðinni í skápinn minn þá kallar gamli kallinn “HEY” mér dauðbregður og sný mér við horfi á hann hrifsa handklæðið sitt úr höndunum á mér og um það leiti fatta ég að handklæðið mitt er utan um mittið mitt. Augnsambandið sem við áttum þarna þessar 15 sekúndur er um það bil það vandræðalegasta sem ég hef lent í en ég vona bara að ég rekist ekkert á gamla mikið oftar.
En í dag er Mr.Jake Fontanamo 18 ára og vonandi les hann þetta og fyrirgefur mér ef ég gef honum ekki gjöf því eins og staðan er núna á ég ekki bót fyrir borunni á mér.

Jake Tootsie
Útí annað, 11 dagar í kóngens kóngens, við félagarnir Davíð kári, Bjarni og Jón ætlum að reyna fóta okkur hjá frændum okkar í 8 daga og hafa gaman af, Bjarni tekur gítarinn og mun eflaust reyna fyrir sér á strikinu en hann hefur fært okkur smellina Why do i grow them hairs og Kitty after dark

Bjarni á styrktatónleikum fyrir sjálfan sig
Ekki lengra í bili , vi ses
